- september 2014
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Ás - frestur framlengdur
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Ás - frestur framlengdur
Búið er að framlengja frest til að greiða atkvæði um kjarasamning SFR og Áss fram til fimmtudagsins 4. september kl. 11. Við hvetjum félagsmenn SFR hjá Ás til að kynna sér efni kjarasamningsins hér og greiða atkvæði sem fyrst.
Atkvæðagreiðslan er rafræn og því er smellt hér og sett inn lykilorð sem félagsmenn fengu sent í bréfapósti.
Áramótin 2010 - 2011 var málaflokkur málefna fatlaðra fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Nýr kjarasamningur SFR og Ás styrktarfélags tekur nú mið af þessum breyttu aðstæðum og er nú til samræmis við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.
Helstu atriði nýs kjarasamnings
Orlofs- og desemberuppbætur
Tvær eingreiðslur
Starfsnám stuðningsfulltrúa
Framhaldsnám félagsliða.
Hér að neðan má sjá nýja grunnröðun starfa sem er til samræmis við starfsmat Reykjavíkur. Annar launaframgangur er einnig til samræmis við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.
|
Starfsheiti Ás |
Grunnlaunaflokkur |
|
Stuðningsfulltrúi |
135 |
|
Félagsliði |
138 |
|
Stuðningsfulltrúi með háskólapróf er nýtist í starfi. |
154 |
|
Matráður |
142 |
|
Launafulltrúi |
156 |
|
Gjaldkeri |
144 |
|
Fulltrúi skrifst. |
138 |
|
Umsjónarmaður |
150 |
|
Deildarstjóri |
163 |
Laun hækka að lágmarki um 2.8% við þennan samning en hækkun getur í ákveðnum tilvikum verið allnokkru meiri vegna samræmingar á launasetningu við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.