- september 2014
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Áss - frestur til 11. sep.
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Áss - frestur til 11. sep.
Þessa viku hefur staðið yfir atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SFR og Ás styrktarfélags. Þátttaka hefur verið mjög dræm og því hefur verið ákveðið af framlengja atkvæðagreiðsluna fram til kl. 11:00 fimmtudaginn 11. september.
Nýr kynningarfundur um samninginn verður haldinn í Lyngási mánudaginn 8. september kl. 15:15. Við hvetjum ykkur til að koma á fundinn og til að að nýta ykkur atkvæðisréttnn en mjög mikilvægt er að ná góðri kosningu svo hún verði örugglega gild. Atkvæðagreiðslan er rafræn og því er smellt hér og sett inn lykilorð sem félagsmenn fengu sent í bréfapósti.
Áramótin 2010 - 2011 var málaflokkur málefna fatlaðra fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Nýr kjarasamningur SFR og Ás styrktarfélags tekur nú mið af þessum breyttu aðstæðum og er nú til samræmis við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.
Helstu atriði nýs kjarasamnings
Ný launatafla og grunnröðun starfa til samræmis við kjarasamning SFR og Reykjav.b.
Orlofs- og desemberuppbætur
Tvær eingreiðslur
Starfsnám stuðningsfulltrúa
Framhaldsnám félagsliða.
Hér að neðan má sjá nýja grunnröðun starfa sem er til samræmis við starfsmat Reykjavíkur. Annar launaframgangur er einnig til samræmis við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.
Starfsheiti Ás Grunnlaunaflokkur
Stuðningsfulltrúi 135
Félagsliði 138
Stuðningsfulltrúi með háskólapróf er nýtist í starfi 154
Matráður 142
Launafulltrúi 156
Gjaldkeri 144
Fulltrúi skrifst. 138
Umsjónarmaður 150
Deildarstjóri 163
Laun hækka að lágmarki um 2.8% við þennan samning en hækkun getur í ákveðnum tilvikum verið allnokkru meiri vegna samræmingar á launasetningu við kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar.