1. mars 2014

Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir gegn Isavia

IsaviaMikið fjölmenni var á baráttufundi starfsmanna hjá Isavia í Reykjanesbæ í gær. SFR stéttarfélag, FFR og LSS boðuðu til fundarins til þess að kynna fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Mikill hugur var í fundarmönnum og eindreginn stuðningur við samninganefndir félaganna.

Eftir fundinn hófst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðirnar og er þátttaka í henni mjög góð, til dæmis höfðu 97% félagsmanna í einu félaganna greitt atkvæði þegar í gærkvöld. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 9 á mánudagsmorgunn, en talið verður í höfuðstöðvum BSRB.

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem kosið er um:

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  þriðjudaginn 8. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  miðvikudaginn 23. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00,  föstudaginn 25. apríl 2014, munu allir félagsmenn félaganna hjá Isavia ohf , leggja niður störf.

Klukkan. 04:00 þann 30. apríl 2014 hefst allsherjarverkfall allra félagsmanna félaganna hjá Isavia ohf sem mun standa þar til annað verður ákveðið.