Stjórn Starfsmenntunarsjóðs SFR hefur gert breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins og
tóku þær gildi 1. janúar 2017 og var kynnt í Blaði stéttarfélaganna í desember 2016.
Meginbreyti ngarnar eru eft irfarandi:
- Náms- og kynnisferðir erlendis og innanlands hafa verið sameinaðar. Núna getur félagsmaður fengið allt að 100.000 kr. á 24 mánaða tí mabili, hvort sem ferðin er á Íslandi eða erlendis og er gerð krafa um 8 klukkustunda faglega dagskrá að
lágmarki.
- Flokkarnir lífsleikni og sjálfstyrking hafa verið sameinaðir í einn fl okk sem heiti r lífsleikni og er nú hægt að fá styrk að hámarki 40.000 kr. á 24 mánaða tí mabili þar undir, greitt er 100% af kvitt un.
- Reglum um ferðastyrk hefur einnig verið breytt þannig að ef vegalengd milli lögheimilis félagsmanns og námsstaðar er 90-250 km getur hann fengið allt að 15.000 kr. í ferðastyrk á 24 mánaða tí mabili, ef vegalengdin er meira en 250 km þá er styrkurinn allt að 30.000 kr. á 24 mánaða tí mabili.
- Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld sl. 12 mánuði og er sú upphæð uppfærð um hver áramót. Árið 2017 skal félagsmaður hafa greitt a.m.k. 22.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði ti l að fá fullan styrk.
Hálfur styrkur er veittur þeim sem hefur greitt á bilinu 11.000-22.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði.