1. desember 2015

Breytingar á úthlutunarreglum Starfsmenntunarsjóðs SFR

Stjórn Starfsmenntunarsjóðs SFR hefur gert breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins og taka þær gildi 1. janúar 2016. Meginbreytingarnar eru eftirafarandi:

  • Núna eiga félagsmenn rétt á að sækja um styrk þegar þeir hafa verið samfellt í 6 mánuði í félaginu en áður þurftu þeir að hafa 12 mánuði samtals á bak við sig. 
  • Einnig verður sú breyting að um áramótin er horft á mánuðina þegar skoðað er hversu mikið félagsmenn hafa nýtt sjóðinn í stað almanaksárs (réttur endurnýjast á 24 mánaða tímabili). 
  • Hámarksupphæð vegna fræðslu og kynnisferða erlendis hækkar í 100.000 kr. úr 80.000 kr.
  • Hámarksupphæð vegna fræðslu og kynnisferða innanlands hækkar í 35.000 kr. úr 25.000 kr.
  • Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld sl. 12 mánuði og er sú upphæð uppfærð um hver áramót. Árið 2016 skal félagsmaður greiða a.m.k. 20.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði til að fá fullan styrk. Hálfur styrkur er veittur þeim sem greiðir á bilinu 10.000-20.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði. Var 17.000 kr. á árinu 2015 til að fá fullan styrk og 8.500-17.000 til að eiga rétt á hálfum styrk. 

Úthlutunarreglurnar er hægt að nálgast í heild sinni hér.