1. febrúar 2014

Fulltrúar SFR á fundi NSO

WP_20140226_12_47_39_ProÖflugasta samstarfið sem SFR tekur beinan þátt í á alþjóðavettvangi er samstarfið á vettvangi NSO (Nordiska Statstjänstemännens Organisation).

Nú í vikunni var fundur í Kaupmannahöfn þar sem aðilar NSO hittust. Rætt var um stöðu kjaramála í hverju landi, auk stöðunnar á stjórnmálasviðinu. Einnig var fjallað um ólík lífeyriskerfi landanna.

Auk þess var á fundinum var farið yfir ýmsa þætti er snýr að næstu ráðstefnu NSO sem haldin verður í Tällberg í Svíþjóð. Ráðstefna verður haldin um miðjan júní og þar sem lögð verður áhersla á styrk ríkisins sem forsendu fyrir velferðarsamfélaginu.