1. febrúar 2014

Könnunin á leið til félagsmanna - tökum þátt

stofnun-arsinsNú eru að hefjast útsending á könnunni um Stofnun ársins og launakönnuninni til félagsmanna SFR. Með þátttöku  geta félagsmenn lagt sitt af mörkum í baráttunni fyrir betra vinnuumhverfi og bættum starfskjörum.

Launakönnunin veitir mikilvægar upplýsingar um laun og starfskjör, sá samanburður nýtist félagsmönnum beint og er okkur afar mikilvægur í baráttunni fyrir sanngjörnum og jöfnum  launum. Valið starfsmannanna á Stofnun ársins segir stjórnendum hvað vel er gert og hvað má betur fara. SFR hvetur alla félagsmenn sína til að taka þátt og leggja þannig sitt af mörkum.