01. nóvember 2023
Katrín og kvennabaráttan
Þann 24. október, á degi Kvennaverkfallsins, tók Stefán Eiríksson útvarpsstjóri viðtal í þættinum Segðu mér á Rás 1 við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um jafnréttismál. Katrín sagði í upphafi þáttar að hún væri femínisti og það hefði verið hluti af hennar heimi síðan hún var barn. Hún sagði að þó Ísland væri efst á lista landa í heiminum yfir kynjajafnrétti væri enn langt í land að ná fullu jafnrétti. „Við erum enn að eiga við kynbundinn launamun og kynbundið ofbeldi,“ sem hún sagði vera meinsemd á Íslandi.