Fréttir og greinar

05. janúar 2016

Nám um Vaktavinnu og lýðheilsu

Fræðslusetrið Starfsmennt auglýsir námsleiðina Vaktavinna og lýðheilsa. Námið er ætlað stjórnendum sem skipuleggja vaktir og starfsfólki sem gengur vaktir. Þar sem álitamálin eru mörg er gert ráð fyrir að starfsmenn og stjórnendur sitji sömu námskeið, til að kynnast ólíkum sjónarmiðum og auka gagnkvæman skilning.

Aðilar á vinnumarkaði vilja með þessu námi tryggja að þeir stjórnendur sem skipuleggja vinnu á vöktum og starfsmenn sem ganga vaktir eigi þess kost að sækja námskeið í gerð vaktskráa sem taka mið af líkamsklukku og heilsuvernd.

 

11. desember 2015

Breyttar starfsreglur Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR

Vakin er athygli á því að nú mega kvittanir eða aðgerðadagsetningar ekki vera eldri en eins árs gamlar, undantekning er þó tannlæknakvittanir, sjá úthlutunarreglur hér.

Frestur til að sækja um og skila inn gögnum fyrir árið 2015: Til þess að geta fengið styrk vegna ársins 2015 er nú nauðsynlegt að sækja um og skila inn gögnum í síðasta lagi mánudaginn 21. desember. Allar umsóknir og gögn sem berast eftir þennan tíma munu undantekningalaust falla á rétt ársins 2016.