23. apríl 2024
Sterk hreyfing – sterkt samfélag
Yfirskrift á baráttudegi launafólks 1. maí í ár er STERK HREYFING – STERKT SAMFÉLAG. Með sterkri verkalýðshreyfingu sem ver réttindi og bætir kjör launafólks með samstöðu skapast sterkara samfélag. Verkalýðshreyfingin, grasrót launafólks, hefur í gegnum tíðina verið það afl almennings sem breytt hefur samfélaginu og náð fram réttindum sem almenningur lifir við í dag; kosningarétt til sveitarstjórna og Alþingis, löggjöf um vinnuvernd, almannatryggingar, orlof og lífeyrissjóði, samningsstöðu gagnvart atvinnurekendum, bætt laun, styttri vinnutíma, matar- og kaffitíma, veikindarétt, sjúkrasjóði, sumarfrí, öryggi á vinnustað, fæðingarorlof og feðraorlof. Öll þessi réttindi náðust fram með baráttu verkalýðshreyfingarinnar í samningum við atvinnurekendur.