Fréttir og greinar

22. september 2014

Námsvísir Starfsmenntar veturinn 2014-2015 kominn út

Starfsmennt-bæklingur-haust-2014Fræðslusetrið Starfsmennt hefur gefið út nýjan og glæsilegan námsvísi fyrir veturinn 2014 - 2015 sem verður borinn út til allra félagsmanna SFR innan skamms, en þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum að kostnaðarlausu. Bæklingurinn er hér á rafrænu formi og hvetjum við alla til að kynna sér fjölbreytt úrval námskeiða sem verður í boði í vetur. Vakin er athygli á þeirri nýjung að fjöldi námskeiða verður í boði í fjarkennslu með sendingum beint í tölvur einstaka þátttakenda.

15. september 2014

Launakönnun SFR 2014 niðurstöður

Launkönnun-forsíðumynd-hrein-lítilLaunakönnun SFR kemur nú út áttunda árið í röð. Könnunin er gerð í samstarfi við VR og St.Rv. og er unnin af Capacent Gallup. Launakönnunin er ein stærsta og veigamesta launa- og vinnumarkaðskönnun landsins.

Niðurstöður launakönnunar SFR 2014 sýna m.a. að heildarlaun félagsmanna hækkuðu um 7% frá síðustu könnun.  Það þýðir að meðal-heildarlaun SFR félagsmanna hafa á tímabilinu hækkað umfram kjarasamningsbundnar launahækkanir sem almennt voru rúmlega 3%, umfram vísitölu neysluverðs sem var 3,1% á tímabilinu og einnig umfram launavísitölu ríkisstarfsmanna sem var 5,6%  á þessu tímabili. Þetta er vissulega jákvæð þróun. 

Launaþróunin á tímabilinu frá janúar 2013 til janúar 2014 hefur því verið jákvæð. Það er hins vegar áhyggjuefni að nú eykst kynbundinn launamunur á milli kannana.  Hann nældist 7% í fyrr  en mælist 10% nú. Þetta sýnir að hvergi má slaka í baráttunni fyrir launajafnrétti. Nánari niðurstöður má lesa hér