14. mars 2014
Kynningarfundur um samning SFR og Reykjavíkurborgar
Kynningarfundur og atkvæðagreiðsla um samning SFR við Reykjavíkurborg verður mánudaginn 17. mars kl. 16:30 á Foss hótel Lind Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík (það er á móti BSRB húsinu). Einnig verður hægt að greiða atkvæði um samninginn á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89, 4. hæð, frá kl. 9 til 16 þriðjudaginn 18. mars og á miðvikudaginn 19. mars fram til kl 12:00.