22. ágúst 2018
Námskeið á Vestfjörðum
SFR hefur náð samkomulagi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða sem er á þá leið að félagsmenn SFR geta nú sótt eftirfarandi námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni, sér að kostnaðarlausu. Þetta er gert til þess að koma til móts við félagsmenn okkar á landsbyggðinni, en Gott að vita námskeiðin hafa lengi verið í boði á höfuðborgarsvæðinu. Verið er að vinna að því að bjóða upp á námskeið í samstarfi við fræðslumiðstöðvar víðar um landið.