Fréttir og greinar

14. nóvember 2013

STÖNDUM SAMAN - BSRB bregður á leik

Eins og margir félagsmenn hafa eflaust tekið eftir þá hefur BSRB brugðið á leik undanfarna daga. Á heimasíðu og facebook síðum bandalagsins má finna hinn stórskemmtilegan spurningarleik en markmið hans er að hjálpa þingmönnum að rifja upp ýmis loforð, enda virðist ekki vanþörf á. SFR hvetur félagsmenn til að taka þátt í leiknum og minna þingmenn rækilega á sig.