26. júní 2020
Konur frekar heima í skertri þjónustu leikskóla
Rúmlega helmingur launafólks, um 52 prósent, áttu þess kost að vinna fjarvinnu vegna COVID-19 faraldursins samkvæmt könnun rannsóknarfyrirtækisins Maskínu fyrir BSRB sem birt er á vef bandalangsins. Mikill munur var á svörum fólks eftir búsetu. Þannig sögðust 61 til 63 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins hafa átt þess kost að vinna fjarvinnu en tæplega 35 prósent íbúa utan höfuðborgarsvæðisins.