21. mars 2013
Happdrætti - Þú ferð í „pottinn“ ef þú svarar könnuninni!
SFR hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni Stofnun ársins en við höfum verið stolt af góðri þátttöku undanfarin ár sem skapað hefur grunn að áreiðanlegum niðurstöðum. Þeir sem svara könnuninni verða sjálfkrafa með í happdrætti þar sem 6 vinningar eru í boði, tvö gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 60 þúsund krónur, tveir aðgöngumiðar að Iceland Airwaves hátíðinni 2013 og 2x helgardvöl í orlofshúsi SFR að eigin vali utan úthlutunartíma. Með þátttöku í „Stofnun ársins“ leggur þú þitt af mörkum í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi.