Fréttir og greinar

04. september 2015

Allir ríkisstarfsmenn við sama borð - það er okkar krafa

Arni við skrifborð ...þungur a brunÁrni Stefán Jónsson formaður SFR skýrir afstöðu SFR og samstarfsfélaga (SLFÍ og LL) í yfirstandandi kjaraviðræðum vel í viðtali á RÚV í gær. Þar ítrekað hann að auðvitað gerum við þá kröfu að ríkið komi eins fram við alla sína starfsmenn. Það eiga ekki að vera Jónar og séra Jónar í þeirra hópi.
„Við gerðum þær kröfur og settum þær fram til samninganefndar ríkisins eftir að gerðardómur kvað upp sinn dóm, um að við gerðum ráð fyrir því að þessi rammi og hækkanir myndu koma til þessara félaga sem eru í þessu samfloti," segir Árni í viðtalinu. „Við lítum þannig á að ríkið hefur í sjálfu sér samið á þessum nótum. Gerðardómur segir að þetta sé það sem þeir komist næst því sem ætti að koma til þessara hópa og væntanlega til annarra ríkisstarfsmanna.“