26. febrúar 2025
Lífeyrismál: Lífeyrisréttindi rædd á fundi Lífeyrisdeildar Sameykis
Lífeyrisdeild Sameykis stóð fyrir fundi um lífeyrisréttindi opinberra starsmanna í félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89 í dag. Árni Stefán Jónsson, fyrrv. formaður Sameykis stýrði fundinum og bauð gesti og fyrirlesara velkoma að hlýða á fróðleg erindi um lífeyrismál. Framsögumenn voru Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Landssamtökum lífeyrissjóða, Anna Björk Sigurðardóttir frá LSR og Þóra Jónsdóttir frá Brú lífeyissjóði.