15. apríl 2021
Syngjandi húsgagnasmiður
Það er alltaf gaman að heimsækja Þjóðleikhúsið. Að þessu sinni í þeim tilgangi að hitta Hildi Evlalíu Unnarsdóttur sem er teymisstjóri leikmyndaframleiðslu Þjóðleikhússins og trúnaðarmaður Sameykis á vinnustaðnum. Hún hefur starfað í leikhúsinu frá því 2016 og unir sér vel í starfinu sem er krefjandi, lifandi og skapandi. Blaðamanni lék forvitni á að vita deili á þessu fallega millinafni sem Hildur Evlalía ber. „Nafnið er sjaldgæft og þýðir „sú sem talar fallega“ og er grískt að uppruna. Eiginnafnið mitt kemur úr norrænni goðafræði eins og fólk þekkir. Evlalíu nafnið er frekar algengt í Grikklandi,“ sagði Hildur Evlalía.