16. október 2018
Hjálpaðu okkur að ná til þín
Þessa dagana er SFR með sérstakt átak í gangi til þess að betrumbæta félagaskrána, þ.e. bæta inn símanúmerum og netföngum þar sem vantar. Þess vegna gætu einhverjir félagsmenn átt von á símtali frá okkar fólki þar sem spurt er um netfang. Okkur langar að biðja ykkur um hjálpa okkur í þessu átaki og fara inn á Mínar síður og bæta þar inn upplýsingum ef vantar, eða hafa samband við skrifstofuna ef þið hafið t.d. nýlega fengið nýtt netfang eða síma (s. 525 8330 eða sfr@sfr.is).