06. febrúar 2019
Fyrsti stjórnarfundur Sameykis
Fyrsti fundur stjórnar Sameykis stéttarfélags í almannaþjónstu var haldinn í gær. Á fundinum var skipað í embætti ritara og skipaðir voru fulltrúar félagsins í nefndir á vegum BSRB. Fjallað var um kjaramál og stöðuna í komandi kjarasamningum, kynnt voru orlofskostir sameinaðs félags fyrir stjórnarmönnum og tekin ákvörðun um orlofskerfi sem á að nota. Formaður orlofsnefndar verður Ólafur Hallgrímsson og Ingunn H. Þorláksdóttir varaformaður fyrra árið og svo skipta þau um hlutverk á seinna árinu.