23. maí 2018
Fundur með frambjóðendum í Reykjavík
Efling, VR, SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar - stærstu stéttarfélögin innan ASÍ og BSRB með starfssvæði í Reykjavík efna til sameiginlegs opins fundar með fulltrúum framboðanna í Reykjavík, til að ræða um þau brýnu kjara- og húsnæðismál sem brenna á starfsfólki Reykjavíkurborgar og öðru launafólki í borginni. Fundarstjórar eru fréttamennirnir Sigmar Guðmundsson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.