30. maí 2023
Geðþóttaákvarðanir valdhafanna
Það er orðin brýn samfélagsleg spurning hvort Seðlabankinn og seðlabankastjóri valdi hlutverki sínu. Þrettánda stýrivaxtahækkunin í röð skall á þjóðinni í síðustu viku og ef rýnt er í spilin þá má skilja að enn frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan. Getur það talist eðlileg og skynsöm leið að nota hagstjórnartæki á þann veg að gera almennu launafólki sífellt erfiðara fyrir að ná endum saman á sama tíma og Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa ekki nokkurn áhuga á að ná félagslegum stöðugleika með því að beita skattakerfinu og öðrum stjórnunartækjum sínum til að verja þá verst settu? Við sjáum dæmin um tekjulítið fólk, ungt fólk í húsnæðiskaupum, einstæða foreldra, öryrkja og aldraða, sem núna standa frammi fyrir því enn á ný að vera skilin eftir og sagt að éta það sem úti frýs. Á meðan er þeim ofurríku, bönkum, fjármagnseigendum, stórfyrirtækjum og stórútgerðum hlíft við því að taka á sig þá samfélagslegu ábyrgð sem þeim ber.