22. maí 2014
Stofnun ársins valin
Rétt í þessu voru kynntar niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins 2014 í Hörpunni. Stofnanir ársins eru þrjár, hver í sínum stærðarflokki:
Sjálfsbjargarheimilið er sigurvegari í flokki stórra stofnana með fleiri en 50 starfsmenn. Einkaleyfastofan er stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana þar sem starfsmenn eru 20-49. Héraðsdómur Suðurlands bar sigur út býtum í flokki stofnana þar sem starfsmenn eru færri en 20.
Hástökkvarinn í ár, eða sú stofnun sem hækkaði sig mest á milli ára er Sýslumaðurinn á Blönduósi en hann hækkaði sig um heil 43 sæti.