06. september 2013
Stjórn BSRB ályktar
Stjórn BSRB samþykkti á fundi sínum sem nú stendur yfir á Egilsstöðum ályktun varðandi kynbundinn launamun, en nýleg könnun bandalagsins sýndi fram á kynbundinn launamun innan BSRB upp á 11,4%. Í ályktuninni lýsir BSRB yfir vonbrigðum sínum með niðurstöður nýrrar kjarakönnunar og hvetur ríkisstjórnina til að halda áfram því jafnlaunaátaki sem fyrri stjórn hóf. Þar er einnig minnt á það að hlutverk ríkis og sveitarfélagaer að vera leiðandi í baráttunni gegn launamisrétti.