Fréttir og greinar

29. apríl 2016

Hvar ætlar þú að ganga?

1 mai myndSamstaða - sókn til nýrra sigra er sameiginleg yfirskrift 1. maí í ár. Í orðunum felast hvatning til okkar allra til þess að sýna samstöðu í verki og sækja fram. 1. maí göngur og hátíðarhöld eru skipuögð um land allt og hvetjum við SFR félaga, vini og fjölskyldur til þess að fjölmenna og fylkja sér undir fána félagsins. Við minnum á að í Reykjavík býður BSRB upp á veglegt kaffi að loknum hátíðarhöldum í BSRB húsinu, Grettisgötu 89. 
Hér má finna lista yfir göngur og hátíðarhöld víða um land.

27. apríl 2016

  1. maí er á sunnudaginn

1. maí bréf1. maí er á sunnudaginn. Þann dag þurfum við launafólk að standa saman. Sjáumst í kröfugöngu um land allt.

 

20. apríl 2016

  1. maí Blað stéttarfélaganna á leiðinni

1-Mai-2016-forsida-hrein1. maí Blað stéttarfélaganna er nú í prentun og mun berast félagsmönnum fljótlega eftir helgi. Í blaðinu er m.a. fjallað um ný frumvörp um fæðingarorlof og húsnæðismál og viðtal við Ólaf Melsted sem vann nýlega mál gegn Seltjarnarnesbæ. Umfjöllun um nýafstaðna aðalfundi félaganna og 1. maí er einnig á sínum stað en félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna í 1. maí gögnur um land allt.