14. desember 2023
Nýtt orlofshús Sameykis á Tenerife til útleigu á morgun
Sameyki býður félagsfólki sínu upp á nýjan orlofskost á Tenerife. Um er að ræða raðhús, Villa Portofino 5B, sem er 186 fermetrar á tveimur hæðum auk þaksvala. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, bílskúr og garður með einkasundlaug. Húsið er staðsett í vesturhluta Los Cristianos í um 10-15 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni og í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum Tenerife Sur. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir en beint á móti húsinu er verslunarkjarni. Þá er aðgengi fyrir fatlaða.