- desember 2023
Ímyndarherferð Samtaka atvinnulífsins
Ímyndarherferð Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins (SA) fara nú mikinn í fjölmiðlum vegna kjaradeilu sinnar og Isavia við Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF).
Samtök atvinnulífsins hafa þannig nánast eytt fleiri klukkustundum á síðustu vikum í greinaskrif og upphrópanir í fjölmiðlum en við samningsborðið. Þess í stað er allt kapp lagt á að benda á aðra. Staðan er sú að kjarasamningur FÍF og SA hefur verið laus í þrjá mánuði en FÍF hefur upplifað lítinn sem engan samningsvilja af hálfu SA.
Eftir þriggja mánaða viðræður sem engu hafa skilað stendur ekkert eftir nema að boða verkfall til að knýja fram alvöru samtal til að ljúka kjarasamningi. Það er engin óskastaða heldur ill nauðsyn.
Fái SA því framgengt að lög séu sett á verkföll og/eða valdheimildum ríkissáttasemjara verði breytt samkvæmt þeirra óskum þvert á vilja launafólks ýtir það undir möguleika þeirra til að draga lappirnar við kjarasamningsgerð og veikir samningsstöðu launafólks.
Þótt nú standi SA fyrir ímyndarherferð um að við séum öll í sama liði og þurfum að vera samtaka, þar sem mennska samtakanna er undirtónninn, verður ekki séð að framkoma þeirra við kjarasamningsgerð eða í fjölmiðlum undanfarið einkennist af þessum meginstefum.
Það dylst fáum að SA er í grímulausri hagsmunabaráttu fyrir (stór)fyrirtæki en ekki fólk. Áróðursstríð SA er að sjálfsögðu háð í þeim tilgangi að komast eins léttilega hjá kjarasamningsgerð við FÍF og annað launafólk og hægt er. Nái SA markmiðum sínum mun það hafa skaðleg áhrif á gerð annarra kjarasamninga sem eru í undirbúningi við meirihluta launafólks á íslenskum vinnumarkaði.
Þetta er framtíðin sem SA vill skapa en spurningin sem eftir stendur er hvort samtök launafólks, stjórnmálafólk eða almenningur deili þeirri framtíðarsýn.
Höfundur er formaður BSRB sem styður heilshugar kjarabaráttu flugumferðarstjóra.
Greinin birtist fyrst á visir.is