25. október 2013
Málþing BSRB um mikilvægi öflugrar heilbrigðisþjónustu
Málþing um mikilvægi öflugrar heilbrigðisþjónustu og þann mannauð sem þar starfar verður haldið á vegum BSRB að Grettisgötu 89, þann 31. október 2013. Dagskráin hefst kl. 13:00 með setningu formanns BSRB og svo mun heilbrigðisráðherra flytja ávarp. Málþingið er öllum opið.
Ráðstefnan er öllum opin en á dagskrá er meðal annars hugleiðing Rúnars Vilhjálmssonar um árangursríka heilbrigðisþjónustu, erindi Önnu Stefánsdóttur, fyrrverandi hjúkrunarforstjóra Landspítala, um mannauð heilbrigðisþjónustunnar og þverfaglega samvinnu. Einnig mun Sigríður Ingibjörg, formaður velfeðarnefndar alþingis, flytja erindi sem hún kallar Gerir alþingi sér grein fyrir stöðu heilbrigðismála í dag.
Dagskrá fundarins verður send út á vefnum fyrir þá sem ekki komast á staðinn og upptaka af fundinum verður sömuleiðis aðgengileg á vef að honum loknum.