Sameyki Logo
Heim
17. nóvember 2023
Jólin á hverjum degi allt árið á þriðju vaktinni
Á fundi trúnaðarmannaráðs í gær fjölluðu hjónin Þorsteinn V. Einarsson og Hulda Tölgyes um aðra og þriðju vaktina. Þau sögðu að þriðja vaktin snúist um hugrænu byrðina sem fylgir hinni ólaunuðu ábyrgð ...
14. nóvember 2023
Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu
Vinnueftirlitið hefur boðað aðgerðavakningu undir yfirskriftinni #Tökum höndum saman: Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan starfsfólks
13. nóvember 2023
Starfaðu með Sameyki
Uppstillingarnefnd Sameykis hvetur félagsfólk sem hefur áhuga á ábyrgðarstörfum innan félagsins að bjóða sig fram eða tilnefna þau sem þau telja að eigi erindi. Framboði má skila inn til og með 10. desember 2023 á vef Sameykis
07. nóvember 2023
Senn líður að jólaballi Sameykis
Jólaball Sameykis verður haldið fyrir félagsfólk og börn þeirra í Gullhömrum í Grafarholti sunnudaginn 3. desember kl. 15:00. Verð fyrir hvern miða er kr. 1.000 og félagsfólk getur keypt allt að 10 miða.
06. nóvember 2023
Karlar mælast með 22,5% hærri laun en konur á íslenskum vinnumarkaði
Samkvæmt uppfærðu talnaefni Hagstofu Íslands mælist nú launamunur kynjanna um 22,5% og birt var í dag. Karlar eru með hærri árlegar ...
02. nóvember 2023
Gagnrýnir orð forsætisráðherra um jafnrétti
Formaður Sameykis skrifar pistil á vef Vísi undir heitinu Katrín og kvennabaráttan. Forsætisráðherra sagði í viðtali í þættinum Segðu mér við útvarpssjóra að hún eigi sér draum að fullu jafnrétti verði náð árið 2030 í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
01. nóvember 2023
Katrín og kvennabaráttan
Þann 24. október, á degi Kvennaverkfallsins, tók Stefán Eiríksson útvarpsstjóri viðtal í þættinum Segðu mér á Rás 1 við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um jafnréttismál. Katrín sagði í upphafi þáttar að hún væri femínisti og það hefði verið hluti af hennar heimi síðan hún var barn. Hún sagði að þó Ísland væri efst á lista landa í heiminum yfir kynjajafnrétti væri enn langt í land að ná fullu jafnrétti. „Við erum enn að eiga við kynbundinn launamun og kynbundið ofbeldi,“ sem hún sagði vera meinsemd á Íslandi.
31. október 2023
Kjarasamningur Sameykis og Strætó bs. samþykktur
Atkvæðagreiðslu um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Strætó bs lauk kl. 16:00 í dag.
30. október 2023
Stefna stjórnvalda er að koma kostnaði af verðbólgunni yfir á launafólk
Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Eflingu stéttarfélagi skrifaði grein í 37. tbl. í Vísbendingu um verðbólguna hér á landi og bendir á ýmsar lausnir sem stjórnvöld hunsa.
27. október 2023
Þú átt leik Katrín
Það var ánægjuleg að fylgjast með þátttöku þinni í Kvennaverkfallinu. Þú sýndir með framgöngu þinni að þú hafnar því að vera bara hlutlaus áhorfandi. Þú velur að stíga ákveðið fram á sviðið og krefjast þess, eins og annað jafnréttissinnað fólk, að kynbundin launamunur verði leiðréttur. Þú segir á Vísi að á fundinum í miðbæ Reykjavíkur hafi verið geggjuð stemmning og frábært að upplifa þessa frábæru þátttöku og þessa skýru sýn. Ég held að það hafi glatt marga að heyra þig segja þetta.