Sameyki Logo
Heim
02. desember 2024
Saman að sjálfbærni
Félagsleg skautun hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum, og á það sérstaklega við um ýmis málefni sem heyra undir sjálfbærni eins og samfélagsleg réttindi, loftslagsmál og efnahagslegar breytingar. Þessi þróun er ekki séríslensk, félagsleg átök og sundrung hafa vaxið víða og skapa þá rými fyrir stjórnmálaleiðtoga sem nýta slíkt ástand sér til framdráttar. Á sama tíma stöndum við frammi fyrir flóknum áskorunum vegna ósjálfbærs lífernis á jörðinni, áskorunum sem krefjast samvinnu allra til lausnar.
28. nóvember 2024
Kjarasamningur við Rarik
Kjarasamningur milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Samtaka atvinnulífsins vegna Rarik var undirritaður í dag. Kjarasamningurinn er til 4 ára með gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028.
Siðlaus einkavæðing gegn almannahagsmunum
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, skrifa grein sem birtist á Vísi í morgun, Siðlaus einkavæðing gegn almannahagsmunum.
27. nóvember 2024
Sameining lífeyrissjóða
Lokaskrefið hefur verið stigið í sameiningu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar við Brú lífeyrissjóð. Frá árinu 1998 hefur Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar (LsRb) verið í rekstri Brúar lífeyrissjóðs (áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga LSS).
Vinnudagbókin 2025
Hægt er að panta vinnudagbókina í stærðinni A6 fyrir árið 2025 hér á vefnum með því að fylla út umsóknarformið og við sendum hana í pósti. Áætlað er að hún komi út um miðjan desember. Að þessu sinni er hún skreytt með mynd af Berghnoðra.
Rétturinn til mannsæmandi húsnæðis á viðráðanlegu verði
ETUC (Evrópska stéttarfélagasambandið) stendur fyrir ráðstefnu um húsnæðismál 5. december nk. vegna samþykktar á framkvæmdastjórnarfundi Evrópuráðsins 15.–16. október sl. um yfirvofandi húsnæðiskreppu í Evrópu.
25. nóvember 2024
Desemberuppbót 2024
Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október.
Mun beita sér fyrir samstarfi og samstöðu
Ingibjörg Sif Sigríðardóttir tók við formennsku hjá Sameyki 11. október sl. Samkvæmt lögum félagsins er kosið til formanns og í stjórn á þriggja ára fresti, næst í mars 2027.
Allir hópar jafn mikilvægir innan Sameykis
Ingibjörg Sif Sigríðardóttir tók við formennsku hjá Sameyki 11. október síðastliðinn. Hún var áður varaformaður Sameykis frá apríl 2021 og hefur setið í stjórn félagsins frá stofnun þess árið 2019, áður StRv frá árinu 2014. Samkvæmt lögum félagsins er kosið til formanns og í stjórn á þriggja ára fresti, næst í mars
22. nóvember 2024
Segja samfélagið standa á krossgötum
Við stöndum á krossgötum. Nú þarf að hefja uppbyggingu í kjölfar tímabils sem hefur einkennst af viðbragði við óvæntum áskorunum eins og Covid, eldgosum og í kjölfarið verðbólgu og háum vöxtum.