Image for Article

  1. september 2025

Gönguhópur lífeyrisdeildar tekur til starfa á ný

Pétur Ásbjörnsson hefur tekið að sér að vera göngustjóri lífeyrisdeildar Sameykis og ætlar að byrja með göngur um garða Reykjavíkur. Fyrsta gangan verður í Fossvogskirkjugarði 25. september klukkan 10:00. Hefst gangan fyrir utan kirkjuna. Hugmyndin er að vera með göngu síðasta fimmtudag í hverjum mánuði.