Fréttir og greinar

07. ágúst 2014

Hverju ætlar þú að bæta við þig í vetur - skráning í nám hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt hafin

Starfsmennt-blom-2014Í nýju veffréttabréfi Fræðslusetursins Starfsmenntar má sjá hluta af þeim námskeiðum sem í boði verða í vetur hjá setrinu en allar nánari upplýsingar eru inni á www.smennt.is. Starfsmennt hefur tekið upp þá nýbreytni að birta dagsetningar margra námskeiða bæði á vor-og haustönn til að auðvelda fólki að tengja saman nám og starf. Að venju er nám Starfsmenntar félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu sem hluti starfsþróunar. Þarna er m.a. námskeið um verkefnastjórnun, nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum, fjarkennd tölvunámskeið, tungumálanám og námskeið fyrir stuðningsfulltrúa.

08. júlí 2014

Blað stéttarfélaganna í prentun

juli-2014-forsidaSumarblað Blaðs stéttarfélaganna sem gefið er út af SFR stéttarfélagi og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar er nú í prentun og verður dreift til félagsmanna síðar í vikunni. Í blaðinu nú má m.a. lesa um niðurstöður í könnuninni um Stofnun ársins, en farið var í heimsókn til tveggja stofnana sem hlutu titilinn og talað við bæði starfsmenn og forstjóra. Þessar stofnanir eru Orkuveita Reykjavíkur sem var stofnun ársins í flokki stærri stofnana hjá St.Rv. og Sjálfsbjargarheimilið sem var Stofnun ársins hjá SFR í flokki stærstu stofnana.

Í sumarblaðinu hefur einnig nýr greinarflokkur um umhverfismál göngu sína, en í þessari fyrst grein er fjallar Auður Alfífa um plastpokanotkun. Þá fjallar Vésteinn Valgarðsson um verkalýðsmál í Danaveldi og vinningsmyndirnar úr ljósmyndasamkeppni blaðsins eru einnig birtar í blaðinu.

04. júlí 2014

Samningar í höfn

Gengið hefur verið frá kjarasamningum við Ás styrktarfélag og Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningar verða kynntir í næstu viku og rafræn atkvæðagreiðsla verður í kjölfarið.