1. júlí 2014

Hólmavík - vikan 4. til 11. júlí var að losna

Hólmavík Sorcery Witchcraft 02 20130718 for91days.Næsta vika á Hólmavík var að losna óvænt af óviðráðanlegum orsökum. Um er að ræða 4. - 11. júlí í einbýlishúsi á einni hæð byggt 1983 samtals 105 fm.  Eignin skiptist í fordyri, forstofu með skápum, hol, tvö rúmgóð svefnherbergi, stóra stofu, eldhús með borðkrók, þvottahús inn af eldhúsi og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á gróna lóð.

Tekið af upplýsingavef um Hólmavík:

Hólmavík er líflegt og skemmtilegt tæplega 400 manna kauptún við Steingrímsfjörð á Ströndum, í aðeins 270 km fjarlægð frá Reykjavík. Íbúarnir í sveitunum í kring um Hólmavík lifa á sauðfjárrækt, en í þorpinu snýst atvinnan að miklu leyti um sjávarútveg og þjónustu. Oft er sagt að á Ströndum búi kraftmikið fólk sem sé í góðum tengslum við náttúruna og eru það orð að sönnu.

Á Hólmavík er margt að sjá og skoða. Nýleg 25 metra sundlaug, náttúrufegurð, fjölbreytt menningar- og mannlíf, golfvöllur, mótorcrossbraut, skemmtilegar gönguleiðir, handverk heimamanna, frábær veitingastaður og bar, skemmtilegar sýningar, skjól- og rúmgott tjaldsvæði eru meðal þess sem er í boði fyrir ferðamenn sem leggja leið sína til Hólmavíkur. 

Hólmavík er paradís fyrir unnendur fallegrar náttúru. Þorpið stendur við sjóinn undir Kálfanesborgunum sem halda því undir sínum verndarvæng. Um Borgirnar er hægt að ganga eftir göngustíg sem hefur verið mjög vinsæll síðustu ár og var lagaður mikið árið 2009. Göngugarpar geta skráð nöfn sín í gestabók sem er staðsett á hæsta hjalla leiðarinnar