30. apríl 2015
- maí og kjarasamningsviðræður
Kjarasamningar SFR við ríki, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) eru lausir frá og með morgundeginum 1. maí. Kjarasamningsviðræður eru þegar hafnar við ríkið og er SFR í samstarfi við Sjúkraliðafélag Íslands og Landssamband lögreglumanna í þeim viðræðum. Kröfugerðir félaganna hafa verið lagðar fram og nokkrir fundir hafa þegar verið haldni. Þá hafa starfshópur fulltrúa viðsemjenda og félaganna hafist handa við að skoða launaþróun í tengslum við endurnýju launataflanna. Næstu vikur má búast við að fundað verði áfram en viðræður við aðra aðila munu hefjast um leið og þær samningaviðræðum sem nú eru í gangi skýrast.
SFR hvetur alla félagsmenn sína til að fjölmenna í 1. maí göngur um land allt og taka þátt í kjarabaráttunni.