Fréttir og greinar

24. janúar 2013

Páskaúthlutun

paskaungiHér er hægt að sækja um orlofshús SFR um páskana og er umsóknarfrestur til og með 4. febrúar, úthlutað verður 6. febrúar. Vikan innanlands kostar 23.000 kr. og í Kaupmannahöfn 77.000 kr. Páskaúthlutun kostar 40 punkta. 

18. janúar 2013

Karlar eru launahærri í starfsgreinum sem kenndar hafa verið við hefðbundin kvennastörf

Frettablaðið_18jan2013_litiÍ Fréttablaðinu í dag kemur fram á bls. 12 í fréttskýringu að kynbundinn launamunur er 12% hjá SFR. Þrátt fyrir að dregið hafi úr kynbundnum launamun í kreppunni er hann enn 12% hjá félögum SFR. Karlar eru með 21% hærri laun en konur. Mestur er launamunur hjá SFR á meðal sérhæfðs starfsfólks og tækna, eða 24% körlum í hag.

16. janúar 2013

Blað stéttarfélaganna komið út

Forsida_blad_2013_jan_litilBlað stéttarfélaganna er að koma út og ætti að berast félagsmönnum næstu dag. Meðal efnis í blaðinu að þessu sinni er umfjöllun um launamun kynjanna þar sem m.a. er ítarleg greining eftir ákveðnum starfsheitum. Einnig er dagskrá fyrir Gott að vita námskeiðin birt en skráning á þau hefst 22. jan. kl. 9. Þá er í fyrsta sinn í blaðinu lögfræðihorn sem verður fastur liður í blaðinu og að þessu sinni er fjallað þar um foreldraorlof.

02. janúar 2013

Framvegis hlýtur gæðavottun fræðsluaðila

Framvegis_gaedavottunFramvegis miðstöð símenntunar hlaut í desember EQM (European Quality Mark) gæðavottun. Með gæðavottun EQM er staðfest að Framvegis stenst evrópskar kröfur um gæði fræðslustarfsemi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins  veitir gæðavottunina ...