15. október 2023
PSI þing: „Það verður að stöðva stríðið í Palestínu"
„Það er átakanlegt að fylgjast með því ofbeldi sem á sér stað í heiminum í dag,“ sagði Dave Prentis formaður PSI. Hann sagði að stríðið sem geysar milli þjóða, í Palestínu og Ísrael, í Úkraínu og víðar í veröldinni deyr fólk sem ríkisstjórnir þessara hafa skapað sínu fólki og heiminum öllum. Opinbert starfsfólk deyr í störfum sínum á hverjum degi í þessum stríðum ásamt almenningi. Ríkisstjórnir verða að bera virðingu fyrir störfum þeirra sem starfa í opinberri þjónustu við að sinna særðu fólki í þessum hræðilegu stríðum. PSI ber líka ábyrgð á því að tala sé fyrir friðsamlegri tvíhliða lausn fyrir báðar þjóðir.