05. ágúst 2021
Þolendur hika við að leita sér aðstoðar
Mikilvægt er að bæta þekkingu á vinnustöðum, bæði hjá starfsfólki og yfirmönnum, á kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum svo hægt sé að vinna markvisst að forvörnum og bregðast rétt við ef atvik koma upp. Allt of algengt er að þolendur kynferðislegrar áreitni og ofbeldis á vinnustöðum hiki við að leita sér aðstoðar.