28. september 2017
Kynbundinn launamunur að aukast
Niðurstöður nýrrar launakönnunar SFR sýna að grunnlaun félagsmanna SFR félaga hækkuðu um tæplega 9% á milli ára 2016 og 2017. Þar af voru 6,5% kjarasamningsbundnar hækkanir hjá flestum SFR félögum. Heildarlaun hækkuðu um 8%. Kynbundinn launamunur mælist nú 13% samkvæmt könnuninni en það er sá munur sem eftir stendur þegar leiðrétt hefur verið fyrir aldri, vinnutíma, starfsaldri, starfsstétt, menntun, vaktaálagi og atvinnugrein. Lægstur hefur kynbundinn launamunur mælst árið 2013 en þá var hann 7%