19. ágúst 2016
Opin námskeið hjá Félagsmálaskóla alþýðu á haustönn
Nú er önnin senn að hefjast og mörg spennandi námskeið framundan hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Námskeiðin verða jafnframt í boði í gegnum fjarfundarbúnað. Boðið verður uppá fjögur almenn námskeið, en það eru:
- 26. september, 09:00-12:00 - Einn réttur ekkert svindl
- 17. október, 09:00-12:00 - Norræna vinnumarkaðsmódelið - nýtt samningalíkan
- 7. nóvember, 09:00-12:00 - Hvíldartímaákvæði
- 22. nóvember, 09:00-12:00 - Lífeyrisnámskeið
Skráning fer fram á heimasíðu Félagsmálaskólans www.felagsmalaskoli.is ásamt nánari upplýsingum.