09. júlí 2013
Viðurkenndur bókari, er það nám fyrir þig?
Starfar þú á bókhalds- eða fjármálasviði á þínum vinnustað en hefur ekki lokið formlegu framhaldsnámi á því sviði? Starfsmennt greiðir undirbúningsnámið, fyrir félagsmenn SFR (ath. ekki er greitt fyrir próftökugjaldið), sem farið er í áður en tekið er próf til viðurkenningar bókara á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Námið er boðið í samstarfi við MK og EHÍ. Umsóknarfrestur er til 6. ágúst í MK og í EHÍ.