11. október 2023
Reglulegir morgunverðarfundir hafnir með félagsfólki í Sameyki
Reglulegir morgunverðarfundir með félagsfólki hófust í morgun í félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89. Gert er ráð fyrir að fundirnir verða haldnir hálfsmánaðarlega og boðað er til fundanna með slembiúrtaki úr félagaskrá Sameykis. Á fundinum í morgun fór Þórarinn yfir starfssemi félagsins; kjaramál, málefni sjóða Sameykis, orlofsmál og réttindamál. Þá var rætt um komandi kjarasamninga, styttingu vinnuvikunnar og þjónustu sem Sameykis veitir félagsfólki sínu.