05. júní 2020
Ert þú meðal hinna heppnu?
Þeir sem tóku þátt í könnuninni um Stofnun ársins lentu sjálfkrafa í happdrættispotti. Alls voru 12 vinningar dregnir úr innsendum svörum. Í vinning eru m.a. 60 þúsund króna gjafabréf frá Icelandalir, helgardvöl í orlofshúsum félagsins, vikudvöl í orlofshúsum félagsins á Spáni og miðar á Airwaves tónlistarhátíðina í haust (þeir miðar verða að sjálfsögðu færðir á milli ára ef vera skyldi að ekki yrði að hátíðinni í ár vegna Corona faraldursins).