- júní 2020
Verðlaunafé í minningu Halldórs félaga okkar
Verðlaunafé í minningu Halldórs félaga okkar
Um nýliðna helgi var haldið minningarmót í golfi um Halldór Snorra Gunnarsson starfsmann Sameykis sem lést í vetur. Halldór var mikill golfari og stóð m.a. að fjölmörgum mótum í Úthlíð með félögum sínum í Vinum vors og Dóra. Mótið að að sjálfsögðu haldið í Úthlíðinni en af þessu tilefni ákvað stjórn Sameykis að gefa verðlaunafé að upphæð 200.000 sem rann til Ljóssins endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda í nafni Halldórs.