Fréttir og greinar

08. apríl 2015

Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2015 rennur út í dag!

Lokað verður fyrir umsóknir á netinu á miðnætti í dag 8. apríl. Úthlutað verður á föstudeginum 10. apríl og þá ættu allir að fá svör í tölvupósti hvort sem það er já eða nei. MIkilvægt er að umsækjendur kíkji í ruslhólfið ef það eru síur á pósthólfunum hjá viðkomandi.

30. mars 2015

Svik stjórnvalda og lögbrot við uppsagnir

Arni við skrifborð ...þungur a brunÁrni Stefán Jónsson formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu skrifar á www.visir.is

Fimmtán starfsmönnum Samgöngustofu hefur verið sagt upp. Í þeirra hópi voru sex félagsmenn SFR og er meðalaldur þeirra 59 ár. Einum býðst endurráðning á lakari kjörum. Kjör þriggja félagsmanna voru skert og fimmtán félagsmenn SFR voru færðir til í starfi. Þá var einnig kynnt á starfsmannafundi að ekki yrði ráðið í 8 stöður sem vitað er að losni á árinu. Sjá greinina í heild hér.