Sameyki Logo
Heim
28. apríl 2022
Við viljum kröftugt og öflugt samfélag
Á 1. maí fögnum við alþjóðlegum baráttudegi launafólks. Það er gleðilegt að við getum öll sem eitt komið saman í lok faraldursins, gengið kröfugöngu og haldið áfram baráttunni fyrir bættum kjörum opinberra starfsmanna og almennings alls.
27. apríl 2022
Endurmat á störfum kvenna og hagfræði rædd á fundi fulltrúaráðs Sameykis
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB, og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, fluttu erindi ...
Það bera sig allir vel
Kæru félagar, til hamingju með alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins þann 1. maí! Vorið flæðir inn um gluggana og loksins getum við fagnað þessum merkisdegi saman í raunheimum eftir tveggja ára heljartak heimsfaraldurs án baráttufunda og kröfugangna.
26. apríl 2022
Tímarit Sameykis á leið til félagsfólks
Í dag hefst dreifing á tímariti Sameykis til félagsmanna. Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis segir í leiðaragrein tímaritsins: „Við sem samfélag höfum lagt áherslu á að vera hluti af norræna velferðarkerfinu, enda standa norrænu löndin fremst þegar kemur að velferð og jöfnuði. Til að standa undir nafni þá ætlumst við til að stjórnvöld svari lágmarkskröfum um að gæta réttlætis og jafnréttis og verndi eigur og auðlindir þjóðarinnar svo fjármálahýenur skyndigróðans geti ekki látið greipar sópa um sameiginlegar eigur okkar.“
25. apríl 2022
Hagvaxtarauki 2022
Hagvaxtarauki samkvæmt kjarasamningum reiknast 10.500 kr. á taxtalaun vegna hagvaxtar árið 2021 og tók gildi 1. apríl síðastliðinn. Hagvaxtarauki kemur því til greiðslu í fyrsta sinn 1. maí næstkomandi. Samningsaðilar eru mismunandi langt komnir með útgáfu nýrra launataflna en Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa þegar birt uppfærðar töflur sem einnig eru komnar hér undir kaup og kjör.
20. apríl 2022
Breytt félagsgjald tekur gildi 1. maí
Sameyki vill minna félagsfólk sitt á að hækkun á félagsgjaldi tekur gildi næstu mánaðarmót 1. maí. Samþykkt var á aðalfundi Sameykis 31. mars sl. að hækka félagsgjaldið um 0,1 prósent til að styrkja og efla Vinnudeilusjóð vegna komandi kjarasamninga.
Stjórnvöld hafi ekki varið afkomu og lífskjör í faraldrinum
Fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðsins að líkur á þunglyndi aukast eftir því sem félags- og efnahagsleg staða er verri. Í COVID-19 faraldrinum bar lágtekjufólk og fólk í viðkvæmri stöðu á íslenskum vinnumarkaði auknar byrðar af faraldrinum umfram þau sem voru be
07. apríl 2022
Í áfalli eftir uppsagnir hjá Vinnumálastofnun
Í frétt sem Kjarninn birtir í dag segir að Vinnumálastofnun hafi sagt upp upp fimm konum í lok mars og segja þær að uppsagnirnar hafi verið óvæntar og framkoma stjórnenda hafi verið ofbeldiskennd, ógnandi og niðurlægjandi í þeirra garð.
31. mars 2022
„Það er víða veisla í atvinnulífinu“
Stefán Ólafsson, prófessor emeritus í félagsfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Eflingu, segir í grein sinni í Vísbendingu Ágætt svigrúm til samninga að miklar arðgreiðslur og launahækkanir forstjóra sýna svigrúm til launahækkana í næstu kjarasamningum.
30. mars 2022
Aðalfundur Sameykis haldinn á morgun
Aðalfundur Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu verður haldinn á morgun 31. mars 2022 á 2. hæð á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, klukkan 16:30. Á dagskrá verður skýrsla stjórnar um starfsemi Sameykis á síðasta ári. Lagðir verða fram endurskoðaðir reikningar síðasta árs. Kosning löggilts endurskoðanda ásamt tveimur skoðunarmönnum og tveimur til vara.