14. október 2015
Verkfall hefst á miðnætti
Eins og fram hefur komið sátu samninganefndir SFR, SLFÍ og LL fund með samninganefnd ríkisins hjá sáttasemjara í dag. Á þeim fundi komu fram nýjar hugmyndir sem samninganefndirnar hafa nú til skoðunar. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR stéttarfélags, segir engar líkur á að verkfalli félagsmanna verði frestað, þrátt fyrir að ríkið hafi lagt fram nýja tillögu í morgun. Hann segir aðildarfélögin nú vinna að því að útfæra þessar hugmyndir.
„Við getum ekki frestað verkfallinu, og það eru engar líkur á því. Verkfallið byrjar klukkan tólf í kvöld, það er algjörlega á hreinu,“ segir Árni. „Núna er bara næsta skref að fara inn í baklandið okkar. Við erum að velta málum upp og við ætlum að það taki töluverðan tíma að fara yfir þessa hugmynd."