05. mars 2020
Hvaða æsingur er þetta?
Árni Stefán setti niður nokkur orð í Fréttablaðið um hver staðan í kjarasamningsviðræðunum er í raun og veru.
Hvers vegna opinberir starfsmenn hafa fengið nóg og boða til verkfalls 9. mars
Kjarasamningar við meginþorra opinberra starfsmanna hafa nú verið lausir í rúma 11 mánuði. Allan þann tíma hafa viðræður á milli viðsemjenda verið í gangi þó hægt hafi gengið. Hlé var tekið um hásumarið og samið um innágreiðslu, enda trú okkar að fljótlega yrði gengið frá samningum. Það varð ekki raunin. Viðsemjendur snéru aftur að samningaborðinu tómir á svip með nákvæmlega sömu rulluna og í byrjun.