04. apríl 2019
Kjarasamningar
Sameyki hefur undanfarnar vikur átt í viðræðum við viðsemjendur sína, en flestir samningar voru lausir 31. mars síðastliðinn. Samninganefndir okkar hafa fundað með fulltrúum ríkis, Reykjavíkurborgar, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Orkuveitunnar, Isavia o.fl. Viðræðurnar hafa þó gengið hægt á meðan beðið var eftir almenna markaðinum og útspili ríkisstjórnarinnar.