Sameyki Logo
Heim
08. desember 2015
Jólaball - miðar seldir á skrifstofu SFR
Átt þú eftir að tryggja þér miða á jólaball SFR og St.Rv. í Gullhömrum næstkomandi laugardag? Miðarnir eru til sölu á skrifstofum félaganna Grettisgötu 89, 4. hæð, opið frá kl. 9-16 alla virka daga. Miðinn kostar 700 kr, bæði fyrir fullorðna og börn.
Verkfallsbætur
Þeir sem enn eiga eftir að sækja um verkfallsbætur eru hvattir til þess að gera það sem fyrst, en lokað verður fyrir umsóknir um verkfallsbætur um áramót. Hér má finna rafræna umsókn.
07. desember 2015
Hætt við kynningafundi vegna veðurs
Sökum veðurs verður hætt við alla kynningafundi sem halda átti í dag vegna kjarasamnings SFR við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kynningu verður komið til félagsmanna með öðrum hætti.
02. desember 2015
Sjáumst á aðventukvöldi
Aðventukvöld SFR og St.Rv. verður fimmtudaginn 3. desember kl. 20:00 að Grettisgötu 89. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir, Mikael Torfason og Anna Lára Steindal lesa upp úr bókum sínum og Tríólurnar syngja. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmönnum er velkomið að taka með sér gest. Ókeypis inn meðan húsrúm leyfir.
27. nóvember 2015
Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar samþykktur
Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar hefur verið samþykktur með miklum meirihluta eða 80,33% atkvæða, nei sögðu 16,39% og 3,28% skiluðu auðu.
Kjarasamningur SFR og Styrktarfélagsins Ás samþykktur
Kosning um kjarasamning SFR og Áss styrktarfélags hefur farið fram og var samningurinn samþykktur með 71,43% atkvæðum, nei sögðu 22,45% og auðu skiluðu 6,12%.
26. nóvember 2015
Kjarasamningur SFR og RARIK samþykktur
Talin hafa verið atkvæði í kosningu félagsmanna um kjarasamning SFR og RARIK. Alls voru 31 á kjörskrá og var svarhlutfalll 77,42%. Samningurinn var samþykktur með 79.17% atkvæða, nei sögðu 20,83%.
24. nóvember 2015
Atkvæðagreiðsa um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar
Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborg er hafin og eru kjörlyklar að detta inn um póstlúgur félagsmanna rétt í þessu. Kjörlyklar munu einnig verða sendir með tölvupósti. Atkvæðagreiðslan stendur til hádegis föstudaginn 27. nóvember.
20. nóvember 2015
Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga undirritaður
Rétt í þessu undirrituðu fulltrúar SFR, St.Rv. og bæjarstarfsmannafélaganna innan BSRB kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem gerðir hafa verið á opinberum vinnumarkaði undanfarið og tekur mið af því rammasamkomulagi sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu í október síðast liðinn. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019 og verður kynntur félagsmönnum strax eftir helgi. Hér má nálgast samninginn.
18. nóvember 2015
Kynningarfundur um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar
Kynningarfundur um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar verður haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð mánudaginn 23. nóvember kl 16:00. Félagsfólk SFR sem starfar hjá Reykjavíkurborg er hvatt til að koma og kynna sér efni samningsins.